18.9.10

Námið, vinnan & lífið

Það er ekki öll vitleysan eins. Tilraunin er hérmeð hafin. 100% vinna á bókasafninu, það er að segja átta tímar á dag. Og svo nám. Fjarnám reyndar, en nám samt. Viðbótardiplóma í bókasafns- og upplýsingafræði, áherslulínan upplýsingafræði og þekkingarmiðlun. Verð í tveimur kúrsum núna fyrir jól, þekkingarmiðlun og svo intertið og upplýsingamiðlun. Þetta blogg er eitt verkefnanna í síðarnefnda kúrsinum.

Ég er ekki enn alveg komin með fastmótaða hugmynd um hvernig bloggið á að vera, giska á að það verði sambland af einhvers konar vangaveltum um námið og bókasöfn, auk tveggja færslna helguðum gagnrýni á tveimur greinum sem ég þarf að lesa í náminu. Allt hluti af verkefninu.

Það er áhugavert að vera loksins komin í bókasafnsfræðina, búin að streitast á móti í nærri tíu ár. Fólk fór að ýja að því við mig strax árið 2001 þegar sumir fóru að vinna sitt fyrsta sumar á gamla safninu. Sem reyndist reyndar einnig verða síðasta sumarið sem gamla safnið var við lýði, næsta sumar var safnið komið í annað húsnæði. Alls ótengt veru minni þar. Vona ég. 

Finnst hálfskrýtið að fá svona nasasjón af fræðunum á bak við vinnuna sem er samt búin að vera stór hluti af lífi mínu undanfarin ár. Lífið er annars eintómt bókasafns-eitthvað.  Læra (fyrir vinnu þessa örfáu daga sem ég næ að vakna nægilega snemma), vinna, læra á safninu, sofa. Og svo framvegis. 

Góða helgi!

3 ummæli:

  1. Til hamingu að vera byrjuð í náminu Lind Rós.
    Ég veit að þú átt eftir að njóta þess.

    SvaraEyða
  2. Þetta lofar góðu nafna - bíð spennt eftir næstu færslu ;)

    SvaraEyða
  3. Hæ Linda
    Sjáumst fljótlega.
    Rétt vika í næstu námslotu í Internetinu.
    Kveðja, Heiða

    SvaraEyða