Það er ekki öll vitleysan eins. Tilraunin er hérmeð hafin. 100% vinna á bókasafninu, það er að segja átta tímar á dag. Og svo nám. Fjarnám reyndar, en nám samt. Viðbótardiplóma í bókasafns- og upplýsingafræði, áherslulínan upplýsingafræði og þekkingarmiðlun. Verð í tveimur kúrsum núna fyrir jól, þekkingarmiðlun og svo intertið og upplýsingamiðlun. Þetta blogg er eitt verkefnanna í síðarnefnda kúrsinum.
Ég er ekki enn alveg komin með fastmótaða hugmynd um hvernig bloggið á að vera, giska á að það verði sambland af einhvers konar vangaveltum um námið og bókasöfn, auk tveggja færslna helguðum gagnrýni á tveimur greinum sem ég þarf að lesa í náminu. Allt hluti af verkefninu.
Það er áhugavert að vera loksins komin í bókasafnsfræðina, búin að streitast á móti í nærri tíu ár. Fólk fór að ýja að því við mig strax árið 2001 þegar sumir fóru að vinna sitt fyrsta sumar á gamla safninu. Sem reyndist reyndar einnig verða síðasta sumarið sem gamla safnið var við lýði, næsta sumar var safnið komið í annað húsnæði. Alls ótengt veru minni þar. Vona ég.
Finnst hálfskrýtið að fá svona nasasjón af fræðunum á bak við vinnuna sem er samt búin að vera stór hluti af lífi mínu undanfarin ár. Lífið er annars eintómt bókasafns-eitthvað. Læra (fyrir vinnu þessa örfáu daga sem ég næ að vakna nægilega snemma), vinna, læra á safninu, sofa. Og svo framvegis.
Góða helgi!